Kallaður til að með­höndla leik­mann FC Barcelona

Oct 19, 2021

Þessi grein birtist á fréttablaðið.is laugardag 22. september 2018

Guttormur hefur undanfarin 22 ár rekið naprapat-stofu í Madríd þar sem hann hefur uppskorið gott orðspor innan knattspyrnuheimsins. 


Íslenskum naprapat, Guttormi Brynjólfssyni, var nýlega flogið til Spánar til að meðhöndla stjörnuleikmann úr knattspyrnuliði Barcelona.

  • Hvernig kom það til að Guttormur var fenginn frá litla Íslandi til að meðhöndla fótboltamann í einu besta liði heims?

„Ég rak eigin naprapat-stofu á Spáni í 22 ár og á þeim tíma náði ég að hjálpa fjölda fólks. Þannig jókst orðspor mitt jafnt og þétt, meðal annars innan knattspyrnuheimsins, og því er stundum hringt í mig þegar í óefni er komið með meiðsl og verki fótboltamanna,“ segir Guttormur, sem einnig hefur meðhöndlað leikmenn úr Liverpool og Real Madrid, svo fátt eitt sé nefnt.

Vegna trúnaðareiðs má Guttormur ekki gefa upp nafn fótboltastjörnu Barcelona en blaðamaður getur staðfest að leikmaðurinn er í aðalliði Barcelona og landsliðsmaður í einu af bestu landsliðum heims.

  • Hvernig er að vinna með atvinnuíþróttamenn í fremstu röð?

„Þessir einstaklingar eiga vitaskuld allt undir að líkami þeirra virki sem allra best og því er mjög gefandi að vinna með þeim. Maður getur verið viss um að þeir fylgi ráðum manns og svíkist ekkert um,“ segir Guttormur og hlær.

Hvernig stendur á því að stórstjörnur fótboltans leita í þína meðhöndlun?

„Sem naprapat (e. doctor of naprapathy) býr maður yfir góðri þekkingu á stoð- og taugakerfi líkamans. Heili okkar stjórnar því í raun hvar við erum veik eða sterk fyrir. Mín meðhöndlun snýst því ekki bara um að ná þeim verkjalausum heldur einnig að finna og styrkja veikleika (miðtaugakerfi og vöðva) og þar með fyrirbyggja framtíðarmeiðsli. Ef við líkjum líkamanum við dekk getum við sagt að ég sé að jafnvægisstilla dekkin svo að þau slitni síður og aksturseiginleikar verði betri,“ útskýrir Guttormur.

  • Í hverju fólst meðhöndlunin á leikmanni Barcelona?

„Það fyrsta sem við gerðum var að greina viðkomandi og í hans tilfelli sá ég minni virkni í vinstra heilahveli. Þegar greining lá fyrir byrjuðum við að vinna með hnykkingar, nudd, styrktar- og jafnvægisæfingar; allt í samræmi við miðtaugakerfið,“ upplýsir Guttormur.

Meðhöndlarðu þá sem koma til þín í Orkuhúsið á svipaðan hátt?

„Já, eins og ég sagði er aðalatriðið að greining á miðtaugakerfinu sé rétt. Síðan vinnum við í að styrkja veik svæði með æfingum, hnykkingum, nuddi og fleiru. Það er mikilvægt að vinna í samræmi við „stjórnstöðina“ (miðtaugakerfið), því ef við gerum það ekki mun líkaminn halda áfram að framkalla sömu stoðkerfisvillur, sama hversu oft við hnykkjum, togum og teygjum.“

  • Hvernig gengur að samræma vinnu á Spáni og að vera nú búsettur á Íslandi?

„Það var auðvitað miklu einfaldara að standa í þessu þegar ég var búsettur á Spáni. Þegar maður tekur að sér svona verkefni er ætlast til að maður klári það. Barcelona-verkefnið gekk vel. Ég flaug út sex helgar í röð, en ef svona verkefni dragast á langinn er það fljótt að segja til sín að vera búsettur á Íslandi.“

  • Hvaða heilræði átt þú handa íþróttamönnum sem vilja vera í toppformi og ná sem lengst í sinni íþrótt?

„Mikilvægast af öllu er að þekkja veikleika sína og halda þeim sterkum. Maður verður í raun aldrei sterkari eða betri en taugakerfið leyfir. Taugakerfið stýrir því meðal annars hvernig við notum stoðkerfi okkar og ef taugakerfið setur til dæmis meiri spennu í hægri bakvöðva mun það með tíð og tíma valda skekkjum í stoðkerfinu sem eykur líkur á meiðslum. Að sjálfsögðu mun það svo hafa áhrif á getu okkar sem íþróttamenn,“ segir Guttormur.


Varð albata á 8 vikum

Alexander Helgi Sigurðarson, miðjumaðurinn knái úr Breiðabliki, var á samningi hjá hollenska félaginu AZ Alkmaar þegar hann reif liðband í hné árið 2016.

„Það var til þess að ég þurfti heim að hverfa og það var auðvitað erfitt,“ segir Alexander sem eftir bata á hnénu sneri aftur til Breiðabliks en meiddist þá á nára í fyrstu vikunni hjá Blikum.


„Ég glímdi við nárameiðslin í hálft þriðja ár, gekk á milli sjúkraþjálfara og lækna án þess að nokkur fyndi hvað amaði að og fór í skurðaðgerð en án árangurs. Svo var það dag einn að ég sá blaðaviðtal við Guttorm naprapat og ákvað að prófa að fara til hans í meðhöndlun. Það reyndist gæfuspor því Guttormur styrkti það sem þurfti að styrkja, fann veikleika mína, lét mig gera æfingar og lagaði stellingar hjá mér, og við það lagaðist ég. Nú er ég orðinn jafngóður og áður, ef ekki betri, og það sem hrjáði mig er einfaldlega gleymt,“ segir Alexander og þykir árangurinn hjá Guttormi magnaður.


„Ég hefði ekki trúað því fyrirfram að lækning á nárameiðslunum fælist í nýjum hreyfingum og öðruvísi beitingu líkamans. Ég hafði verið svo lengi frá og var farinn að trúa því að ekkert yrði hægt að gera. Svo tók ekki nema átta vikur að verða albata á ný,“ segir Alexander sem er aftur farinn að spila með Breiðabliki og skoraði meira að segja mark í fyrsta leiknum, en Alexander spilaði einnig með U17- og U19-landsliðum Íslands.

„Guttormur bjargaði mér og lagaði svo ég gæti enn og aftur spilað fótbolta. Svo einfalt er það. Ég hvet því allt íþróttafólk til að leita sér bata með naprapat-meðferðum Guttorms og veit að enn fleiri knattspyrnumenn eru nú að nýta sér þessa árangursríku tækni með frábærum árangri.“


Hnykkir, nuddar og teygir

Meðhöndlun naprapats felst meðal annars í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvefjum, og sérsniðnum æfingum við hvers kyns stoðkerfisvandamálum.

„Bein þýðing á orðinu naprapat er „að leiðrétta orsökina“,“ útskýrir Guttormur, en starfsheitið naprapati tilheyrir sænska heilbrigðiskerfinu og hefur starfsgreinin verið löggild í Svíþjóð síðan 1994.

„Þriðji hver Svíi hefur leitað til naprapats með stoðkerfisvandamál sín og það hefur gert naprapata að vinsælustu stoðkerfismeðhöndlurum Svíþjóðar. Niðurstöður rannsókna í samvinnu við Karolinska-sjúkrahúsið í Stokkhólmi sýndu að naprapat-meðferðir á stoðkerfinu séu með þeim bestu sem völ er á. Þá má einnig benda á niðurstöður rannsóknar sem birtist í Clinical Journal of Pain, einu virtasta læknatímariti heims, undir yfirskriftinni „Naprapathic manual therapy or evidence-based care for back and neck pain“,“ segir Guttormur.

Með stofur á Spáni og Íslandi

Guttormur útskrifaðist sem naprapat árið 1996. Eftir útskrift opnaði hann naprapat-stofuna Natt Center í Madrid sem hann starfrækir enn. Árið 2016 flutti Guttormur til Íslands og opnaði naprapat-stofu í Orkuhúsinu á Suðurlandsbraut.

„Þar meðhöndla ég ekki bara þá sem eiga við meiðsli eða verki að stríða, heldur einnig þá sem vilja fyrirbyggja stoðkerfisvandamál og hámarka vellíðan. Naprapat býr yfir mikilli þekkingu og tækni til að tryggja að líkaminn virki sem allra best.“


Stofa Guttorms er nú á Garðatorgi 7, 210 Garðabæ

14 Nov, 2021
Uss...hver þarf sól, áfram Ísland.
07 Nov, 2021
Það hefur margt breist í meðhöndlun heilahristings...
07 Nov, 2021
Samkvæmt þessari rannsókn þá er samhengi á milli stærðar á sjáaldri (pupil) og gáfna.
Sjá allar fréttir
Share by: